Um Skólahreyfinguna
Kristilega skólahreyfingin er hreyfing fólks sem vinnur að því að sameina kristna nemendur trú þeirra til uppbyggingar og efla þá í að vitna um Jesú Krist í skólanum sem utan skóla. Skólahreyfingin er regnhlíf sem nær yfir stjórn hennar og starfmann, aðildarfélögin KSS og KSF, óformlega skólasmáhópa og stuðningsaðila sem styðja starfsemina með bæn og frjárframlögum.
Kristilega skólahreyfingin var stofnuð 27. janúar 1979 af Kristilegum skólasamtökum (KSS), Kristilegu stúdentafélagi (KSF) og Styrktarfélagi Kristilegu skólahreyfingarinnar (SKS stofnað 20. janúar sama ár en nú aflagt). Markmið KSH er að sameina kristna nemendur og stúdenta á Íslandi og breiða út fagnaðarerindið um Jesú Krist. Að þessum markmiðum hefur verið stefnt með því að styðja við starf aðildarfélaganna KSS og KSF og vinna að útbreiðslu kristinnar trúar og kristilegs skólastarfs um landið. Í gegnum tíðina hefur KSH átt í nánu og farsælu samstarfi við KFUM og KFUK og Samband íslenskra kristniboðsfélaga.
Stjórn KSH er kosin á árlegu ársþingi hreyfingarinnar og hefur m.a. að hlutverki að fylgjast með starfi aðildarfélaganna og bera ábyrgð á starfsmannamálum. Undanfarin ár hefur hreyfingin verið með starfsmann í hálfu starfi en launakostnaður er fjármagnaður með gjöfum einstaklinga og öðrum styrkjum s.s. frá Kirkjumálasjóði og prófastsdæmum.
Sr.Sigurður Már Hannesson er starfsmaður hreyfingarinnar í 50% stöðugildi. Hann hefur skrifstofuaðstöðu í húsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28.
KSH hefur frá stofnun (KSF gekk í IFES 1975) verið aðili að IFES (International Fellowship of Evangelical Students) sem eru alþjóðleg samtök kristilegra skólahreyfinga. Innan IFES eru meira en 500.000 stúdentar í yfir 160 löndum.
Merki Skólahreyfingarinnar
Myndina í merkinu er hönnuð af Þresti Magnússyni auglýsingateiknara fyrir norrænt stúdentamót í Reykjavík 6.-12. ágúst 1975. Yfirskrift mótstins var: Orð Guðs til þín. Í kynningarefni mótsins var merkið sjöfaldað og átti að minna á norðurlöndin sjö. Síðar var merkið tekið upp sem merki Skólahreyfingarinnar við stofnun hennar 1979. Í merkinu má sjá kross standa í stafni skips sem minnir á knarr eða langskip. Ekki er úr vegi að túlka merkið sem svo að það sýni orð krossins – fagnaðarerindið – sækja fram og nema land meðal nemenda og stúdenta á Íslandi.